Þarf
eitthvað að ræða þetta frekar!! Á meðan ríkissjóður vex og
vex, er maður en og aftur að heyra um skuldasöfnun
borgarinnar, þ.e.a.s undir stjórn Ingibjargar Sólrúnar og
R-listans árið 2006!! Tilkynning barst kauphöll íslands um 6
milljarða kr. lakari afkomu en reiknað var með. ISG og
félagar áætluðu um 1.7 milljarð í afgang, en viti menn það
varð tap upp á 4,3 milljarða....
Úps!
Hvernig þorir
þessi kona að fara í frammi með stjórnmálaflokk í kosningar. Hvað
hefði hún gert ef hennar flokkur hefði náð meirihluta ásamt t.d
afturhalds sósíalistanum Steina J og hans teymi, og staðið frammi
fyrir því að stýra margfalt stærra skipi en Reykjavíkurborg?? Ég
mundi allavega ekki treysta manneskju fyrir
skipi sem gæti ekki siglt tryllu.... Allavega, eftir að talið var
úr kössunum, var það skjalfast að ISG og hennar flokkur er kominn á
byrjunareit (afhverju er ég ekki
hissa).
Að mínu mati
hafði stjórnarandstaðan lítið fram að færa!! Afhverju segi ég það?
Jú, það er einfalt. Hvernig er hægt að stoppa framþróun og hagvöxt
í landinu um leið og maður ætlar sér að hækka skattleysismörkin,
útrýma biðlistum, afnema stimpilgjöld, laga tennur í öllum
o.sfrv... Þetta er hægt, bara ekki með aðferðafræði
stjórnarandstöðunar! Við stöndum einfaldlega andspænis þeirri
staðreynd að dagarnir líða og á degi hverjum þarf fleira og fleira
fólk á aðstoð að halda sem kostar ríkissjóð, samgöngur þarf að
virkja og ekki er það ódýrt. Svona getur maður endalaust talið upp
kostnað sem þarf að koma úr ríkiskassanum. Útgjöldin hafa aldrei
ætlað sér að hverfa, og til þess að við getum sett þá kröfu að
ríkissjóður taki minna úr okkar vasa verður að nýta allar auðlindir
Íslands með sem skynsamlegasta hætti. Það er ekki hægt að segja
okkar kæru ríkisstjórn að stoppa á meðan við setjum kröfu á minni
skatta, lægra bensín verð, gjaldfrjálsa leikskóla
o.s.frv.
Við erum góðu
vön hér á Íslandi, ekki viljum við breyta því? Lítið atvinnuleysi
(með því minna sem þekkist), frábært heilbrigðiskerfi, kaupmáttur á
Íslandi hefur vaxið gríðarlega og hér þykir gott að búa. Það
sannaði könnun sameinuðuþjóðanna á lífskjörum, þar lenti Ísland í
2. sæti yfir þær þjóðir sem í heimi þykir best að
búa...Stjórnin heldur og nú taka við “nýjir tímar á
traustum grunni” og “áfram og ekkert stopp” og
allt það... með hag okkar ALLRA í brjósti, óska ég
sjálfstæðismönnum og landsmönnum öllum til
hamingju!!!